Jæja, þá er ég búin að gefast formlega upp á blogspot og færa
mig yfir á hið rammíslenska blogcentral. Enda blogspot síðan mín
búin að vera öll í klessu síðan þeir ákváðu að uppfæra hana og
ekkert gaman að skrifa á hana lengur.
Annars er bara allt í lukkunar velstandi þessa dagana, ég er
komin aftur til Reykjavíkur eftir frekar erfitt og sólarlaust
sumarfrí, í rauninni rigndi bara tvisvar sinnum allt fríið, fyrst í
4 daga og síðan í 8. Svo að brúni liturinn sem húð mín státar af
þessa dagana er að öllum líkindum ryð en ekki sólbrúnka. Ég var
rétt tímanlega komin í bæinn til að mæta í ræktina (já, ég hreyfi
mig stundum), komst þaðan algerlega óslösuð að þessu sinni.
Þessi síðustu misseri hef ég mætt í þrek og þol í
Hreyfingu á mánudögum og miðvikudögum, og í líkamssultu (bodyjam) á
þriðjudögum og fimmtudögum til heiðurs Brillu minni sem veit fátt
skemmtilegra en líkamssultu þessa. Einhvernmegin hef ég samt á
tilfinningunni að ég muni gefast fljótlega upp á líkamsultunni og
jafnvel snúa mér að hlaupi í staðinn. Þetta munu allir skilja sem
nokkurntíma hafa séð mig dansa, ég er einhvernmegin eins og fíll í
postulínsbúð og það vottar ekki
fyrir minnsta yndisþokka í hreyfingum mínum. Ég hreyfi
mig semsagt eins og ég sé 120 kílóa Pinocchio en ekki 55
kílóa manneskja. Og í ofanálag er ég reglulega kýld köld af
fótafimari dansfélögum mínum sem venjulega taka handasveiflur
sínar ca 1/2 mínútu á undan yðar einlægri. Að sjálfsögðu er
allt þetta ofbeldi mér sjálfri að kenna, það er bara ekki hægt að
setja einn saltstólpa innan um 20 ballerínur og ætlast til
þess að hann sleppi þaðan óbarður...... Ég tek ofan fyrir fólki sem
býr yfir þeim einstaka hæfileika að hreyfa samtímis bæði hendur og
fætur, og gott ef ekki bara einnig höfuð og nafla í leiðinni,
seiseijá......
Ég er að spá í að fara að stunda hugleiðslujóga fjótlega, það ku
vera mun rólegra og hættulausara en líkamsultan margumrædda og í
alla staði mun heppilegra sport fyrir fólk sem þjáist af skorti af
yndisþokka. Ég hitti nefnilega konu í síðustu viku sem hafði
steinhætt að reykja með því að stunda þetta afbrigði af jóga.
Ég náði ekki almennilega lýsingunni hjá henni, en leyst samt
ágætlega á þetta. Ég held að ég sé semsagt að fara að tala við
spjaldhrygginn á mér til þess að hætta að reykja....Eða
einhvernmegin svoleiðis.......Og kannski að læra að anda með
naflanum í leiðinni.....